Klassískt hálsmen með hjartalaga plötu sem er tilvalin til áletrunar. Vinsælt er til dæmis að grafa nafn eða dagsetningu í hálsmenin. Þetta hálsmen frá Sif Jakobs tilheyrir línunni Follina Lungo.
925 silfur og rhodiumhúðað
Hágæða AAA zirkonia
Stærð mens: 12,5x15mm
Lengd keðju: 45cm
Skartgripirnir koma í fallegri öskju frá Sif Jakobs
Sif Jakobs skartgripirnir hafa hlotið mörg alþjóðleg hönnunar verðlaun. Frá stofnun árið 2009 hefur Sif Jakobs boðið upp á allt frá klassískum einföldum skartgripum, yfir í skemmtilega öðruvísi og djarfari hannanir. Sif Jakobs skartgripirnir eru smíðaðir úr sterling silfri og dregur hún innblástur sinn mikið úr íslenskri náttúru.