Fallegt einfalt úr með lítilli geimveru og geimskipi. Vatnsvarið og vandað svissneskt úr með sterkri ól með öryggissylgju sem er hönnuð til að bregðast við álagi ef börnin festa sig. Auðvelt að læra á úrið þar sem vísarnir eru stóri bróðir og litla systir sem lesa tölurnar. Stóri bróðir les mínúturnar og litla systir les klukkustundirnar. Vel læsileg skífa þar sem börnin eiga auðvelt með að læra á klukku. Svissnesk gæði fyrir barnið þitt.
Efni: BPA frítt, Lífrænt plast (framleitt á umhverfisvænni hátt)