Orient eru japönsk úr sem eru framleidd í eigin verksmiðju og geta því boðið upp á einstaklega vönduð og vel byggð úr miðað við verð. Einnig eru úrin þeirra þekkt fyrir góða endingu. Rök má færa fyrir því að Japan, Sviss og Þýskaland séu fremstu úraþjóðir heims í dag og segja má að Orient sé eitt af þeim fyrirtækjum sem hafa komið japanskri úrsmíði á þann stall sem hún er í dag, en sögu fyrirtækisins má rekja aftur til 1901. Orient bjóða upp á úr fyrir þann stílhreina og látlausa, sem og úr sem tekið er eftir.
Efni kassa: Stál
Armband: Stál
Stærð úrkassa: 43mm
Þykkt úrkassa: 13mm
Gler: Rispufrítt safírgler
Vatnsvörn: 20 ATM (200 metrar)
Gangverk: Sjálfvinda, þarfnast ekki rafhlöðu (automatic)
Ábyrgð: 2 ár
Askja: Kemur í öskju merktri Orient
Aðrir kostir: Niðurskrúfuð króna fyrir aukna vatnsvörn og lume (getur lýst í myrkri)