Skila og skiptiréttur varðandi vörur keyptar í netverslun
Skilaréttur 14 dagar þegar vara er keypt óséð (eingöngu vörur í vefverslun)
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenar varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað.
Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, það verð sem greitt var fyrir vöruna.
Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Lög um neytendasamninga
Skiptiréttur 60 dagar
Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skipt.
Við skipti á vöru er miðað við verðið sem greitt var fyrir vöruna.
Leyfilegt er að nýta inneignarnótu með þeim afsláttum sem eru í gildi á þeim tíma.
Ef skiptivara er keypt á tilboði og skipt er í dýrari vöru í sama vörumerki og afsláttur gilti um er varan tekin inn á fullu verði og viðkiptavinur greiðir mismuninn. ATH á eingöngu við ef sami afsláttur var á allri vörulínu, ekki ef um sértilboð á vallinni vöru eða útsöluvöru er að ræða.
Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Skiptimiði fyrir gjafir er 30 dagar
Allar okkar vörur úr netverslun skilast með 30daga skiptimiða. En á jólasölutímabili frá Nóvember til jóla koma allar okkar vörur með skiptimiða til 06.Janúar Ef fólk er úti á landi endilega hafið samband um rýmri skilafrest.
Vörur sem falla ekki undir skila né skiptirétt
Vara sem hefur verið áletruð, stytt eða breytt á einhvern hátt að þörfum kaupanda.
Sérpantanir sem gerðar eru að beðni kaupanda.
Vörur sem keyptar eru á mikið lækkuðu verði t.d. útsölu eða rýmingarsölu.