Þetta úr frá Briston úr Regatta línunni er unnið í samstarfi við samtökin "The Most Beautiful Bays in the world" sem nú í dag sjá um reglulega hreinsun á 42 ströndum í heiminum. Þetta úr var einungis framleitt í 100 eintökum. Úrkassinn og ólin eru úr endurunnu plasti og er ólin unnin 100% úr plasti sem safnað var úr Miðjarðarhafi. Fallegt og vandað úr með 200 metra vatnsvörn og hertu K1 gleri sem er meira rispuvarið en hefðbundið mineral gler. Regatta línan frá Briston fær innblástur sinn frá siglingarúrunum frá sjöunda áratugnum og heiðrar þetta úr allt siglingarfólk.
Ef þú villt bæta skemmtilegu og öðruvísi úri í úrasafnið þitt, þá eru Briston úrin eitthvað fyrir þig. Briston úrin eru frumleg og glæsileg úr og er notast við náttúrulegar trefjar (e. acetate) í flesta úrkassana hjá þeim (sömu náttúrulegu trefjar og eru oft notast við í gerð gleraugna). Það má lesa betur um þessar trefjar hér neðar í umfjöllun um Briston úramerkið. Við erum með úrval af Briston leður- og nato ólum og stálkeðjum og er hægt að leika sér með litasamsetningarnar og útlitið á úrunum þeirra.
Annað: Lume í vísum og klukkustundamerkjum sem getur lýst í myrkri
Ábyrgð: 2 ár
Askja: Merkt Briston
Briston er franskt úramerki og má rekja sögu Briston til ársins 2012 þegar Brice Jaunet nýtti margra ára reynslu sína og innsæi í úrabransanum til að hefja að framleiða eigin úr. Hann lagði upp með að leggja áherslu á góð gæði, góð verð og frumlegt og framandi útlit. Stofnandi Briston, Brice Jaunet hefur eins og fyrr segir gífurlega mikla reynslu í úrabransanum og hefur í gegnum tíðina unnið fyrir merki eins og Cartier, Baume & Mercier, Raymond Weil og Zenith. Briston notast oftast við náttúrulegar trefjar (e. acetate) sem er efni unnið úr plöntum sem er svo náttúrulega þurrkað í 2-3 ár og síðan skorið í smærri einingar. Þessu er síðan blandað saman í fallegri litaflóru og brætt í sitt einstaka útlit. Þessar náttúrulegu trefjar (e. acetate) hafa ekki nein skaðleg áhrif á húð manna og eru því oft notaðar til dæmis í gleraugu. Efnið er sterkt og endingargott og er hægt að pússa upp komi rispur í það.