Stórglæsilegt kafaraúr á frábæru verði séu gæði tekin með í reikninginn. Úrið er með 300 metra vatnsvörn, ceramic kafarahring, sjálfvinduúrverki og þykku og sterku rispufríu safírgleri.
Ef þú villt bæta skemmtilegu og öðruvísi úri í úrasafnið þitt, þá eru Briston úrin eitthvað fyrir þig.
Efni úrkassa: Stál (316L), ceramic í kafarahring
Ól: 20mm gúmmíól
Gler: Rispufrítt safírgler (3.3mm þykkt)
Stærð úrkassa: Um 44mm
Þykkt úrkassa: Um 13.75mm
Vatnsvörn: 30ATM (300 metrar)
Úrverk: Sjálfvinduúrverk (NH35A) með 41 klukkustunda hleðslu (e. power reserve)
Annað: Niðurskrúfuð króna fyrir aukna vatnsvörn og lume í vísum og klukkustundamerkjum sem getur lýst í myrkri
Ábyrgð: 2 ár
Askja: Merkt Briston
Briston er franskt úramerki og má rekja sögu Briston til ársins 2012 þegar Brice Jaunet nýtti margra ára reynslu sína og innsæi í úrabransanum til að hefja að framleiða eigin úr. Hann lagði upp með að leggja áherslu á góð gæði, góð verð og frumlegt og framandi útlit. Stofnandi Briston, Brice Jaunet hefur eins og fyrr segir gífurlega mikla reynslu í úrabransanum og hefur í gegnum tíðina unnið fyrir merki eins og Cartier, Baume & Mercier, Raymond Weil og Zenith. Briston notast oftast við náttúrulegar trefjar (e. acetate) sem er efni unnið úr plöntum sem er svo náttúrulega þurrkað í 2-3 ár og síðan skorið í smærri einingar. Þessu er síðan blandað saman í fallegri litaflóru og brætt í sitt einstaka útlit. Þessar náttúrulegu trefjar (e. acetate) hafa ekki nein skaðleg áhrif á húð manna og eru því oft notaðar til dæmis í gleraugu. Efnið er sterkt og endingargott og er hægt að pússa upp komi rispur í það.