Fallegt sjálfvinduúr með hvítri skífu með glugga sem sýnir úrverkið vinna. Úrið hefur 50 metra vatnsvörn og þykkt og sterkt rispufrítt safírgler.
Ef þú villt bæta skemmtilegu og öðruvísi úri í úrasafnið þitt, þá eru Briston úrin eitthvað fyrir þig. Briston úrin eru frumleg og glæsileg úr og er notast við náttúrulegar trefjar (e. acetate) í flesta úrkassana hjá þeim (sömu náttúrulegu trefjar og er oft notast við í gerð gleraugna). Það má lesa betur um þessar trefjar hér neðar í umfjöllun um Briston úramerkið.
Efni úrkassa: Stál og náttúrulegar trefjar (e. acetate toroise shell).
Ól: 20mm leður ól
Gler: Rispufrítt safírgler (2mm þykkt)
Stærð úrkassa: Um 40mm
Þykkt úrkassa: Um 11.7mm
Vatnsvörn: 5ATM (50 metrar)
Úrverk: Sjálfvinduúrverk (NH35A) með 41 klukkustunda hleðslu (e. power reserve)
Annað: Gegnsætt bak. Hægt að sjá úrverkið vinna bæði að framan og aftan
Ábyrgð: 2 ár
Askja: Merkt Briston
Briston er franskt úramerki og má rekja sögu Briston til ársins 2012 þegar Brice Jaunet nýtti margra ára reynslu sína og innsæi í úrabransanum til að hefja að framleiða eigin úr. Hann lagði upp með að leggja áherslu á góð gæði, góð verð og frumlegt og framandi útlit. Stofnandi Briston, Brice Jaunet hefur eins og fyrr segir gífurlega mikla reynslu í úrabransanum og hefur í gegnum tíðina unnið fyrir merki eins og Cartier, Baume & Mercier, Raymond Weil og Zenith. Briston notast oftast við náttúrulegar trefjar (e. acetate) sem er efni unnið úr plöntum sem er svo náttúrulega þurrkað í 2-3 ár og síðan skorið í smærri einingar. Þessu er síðan blandað saman í fallegri litaflóru og brætt í sitt einstaka útlit. Þessar náttúrulegu trefjar (e. acetate) hafa ekki nein skaðleg áhrif á húð manna og eru því oft notaðar til dæmis í gleraugu. Efnið er sterkt og endingargott og er hægt að pússa upp komi rispur í það.