Fallegt og vandað svissneskt úr fyrir börn með geimförum. Vatnsvarið úr með sterkri ól með öryggissylgju sem er hönnuð til að bregðast við álagi ef börnin festa sig.
Auðvelt að læra á úrið þar sem litli hvíti vísirinn les hvítu stafina og segir til um klukkutímana. Stóri blái vísirinn les bláu tölurnar og segir til um mínúturnar. Mínúturnar sjást á yst á skífu úrsins og því tilvalið fyrir börn sem eru að byrja að læra á klukku.
Efni: BPA frítt, Lífrænt plast (framleitt á umhverfisvænni hátt)